Það var einu sinni um hávetur í ákafri snjókomu, að drottning nokkur sat við gluggann í höllinni sinni, og var að sauma. En gluggagrindin var úr hrafnsvörtu "íbenholti"[1]. Henni varð þá litið út um gluggann á mjöllina, sem hlóðst niður í gluggatóptina, og sem var svo drifthvít að það var undur. Hún stakk sig þá á nálinni í fingurinn, svo að það hrutu niður fá-einir blóðdropar á gluggakistuna. En þegar hún sá, hversu hið rauða var fagurt hjá drifthvítri mjöllinni, þá hugsaði hún með sjálfri sjer: "Það vildi jeg að jeg ætti mjer svo lítið barn, eins hvítt og mjöll, eins rautt og blóð, og eins svart og gluggagrindin sú arna."
Skömmu síðar eignaðist drottningin ofur-litla dóttur, sem var eins …
Your support pays for translating these classics into more languages.
Support for $12/month DonateSubscribers read with instant translation, without waiting for the free daily limit.