Eg er sannfærð um, að engin sú kona er til og hefir aldrei verið til, sem eigi hefir lagt fyrir sjálfa sig þessu líka spurningu einhvern tíma á æfinni, og þá helst meðan æskan og fegurðin voru í blóma sínum; þegar lífið brosti við og vonirnar voru sem bjartastar og himinháu skýjaborgirnar enn ófallnar, þá hefir þessi spurning komið fram í hugum allra kvenna og hver hefir reynt að svara henni eftir bestu vitund--með framkomu sinni. Það er tilgangur minn með þessum bæklingi, að reyna að benda ungum og gömlum kynsystrum mínum á ýmislegt það, er verða mætti þeim til leiðbeiningar í umgengni og samlífi við karlmenn, og einkum hvernig þær eiga að hegða sér og haga til þess að verða yndislegar í þ…
Or read it translated: 日本語 · 中文 · हिन्दी · Español · العربية · Français · বাংলা · Português · Русский · Bahasa Indonesia · اردو · Deutsch · Kiswahili · 한국어